Reglur Landsmóts ÆSKÞ

  1. Munum gullnu regluna og förum eftir henni
  2. Umgengni lýsir innri manni. Göngum um allt húsnæði með virðingu. Valdi þátttakandi skemmdum á húsnæði og/eða eigum á mótssvæði, ÆSKÞ eða annarra er honum gert að bæta tjónið.
  3. Á auglýstum kyrrðartíma eiga allir að vera komnir á sína svefnstaði og forðast háreysti.
  4. Skyldumæting er á alla auglýsta dagskrá mótsins nema annað sé sérstaklega teki fram.
  5. Þátttakendum ber að hlýða leiðtogum sinnar kirkju, starfsfólki og landsmótsstjóra.
  6. Orkudrykkir eru bannaðir á landsmóti.
  7. Vegna algengis bráðaofnæmis fyrir hnetum eru hnetur og matvörur sem innihalda hnetur (s.s. Snickers) ekki leyfðar á mótinu.
  8. ÆSKÞ ber ekki ábyrgð á verðmætum (s.s. símum, spjaldtölvum, fartölvum, farangri eða öðru) sem þátttakendur eða leiðtogar taka með sér á mótið.
  9. Meðferð og neysla áfengis og annarra vímuefna er óheimil á landsmóti. Haft verður skilyrðislaust samband við forráðamenn þeirra sem brjóta þessa reglu og viðkomandi sendur heim á þeirra kostnað.
  10. Tóbaksnotkun er ekki leyfð á mótinu. Við fyrsta brot verður haft samband við forráðamenn. Verði notkunar aftur vart verður viðkomandi sendur heim á þeirra kostnað. Sama gildir um rafrettur.