Landsmót ÆSKÞ 2023

Innritun

Við komu á Landsmót þurfa leiðtogar/prestar að byrja á því að innrita sinn hóp. Fyrir brottför prenta þeir út innritunarlista í skráningarkerfinu og merkja við þá þátttakendur sem eru mættir. Við innritun fást afhent armbönd, hálsbönd leiðtoga, vaktaskrár og önnur gögn.

Aldur þátttakenda

Landsmót er fyrir unglinga á aldrinum 13-17 ára (fædda 2006-2010). Leiðtogar skulu hafa náð 18 ára aldri þegar mótið byrjar. Ungleiðtogar starfandi í sínum kirkjum geta verið skráðir á mótið sem þátttakendur. Hafi þeir náð 17 ára aldri við upphaf mótsins geta þeir fengið armbönd ungleiðtoga. Þeir eru þá ekki með stöðu leiðtoga á mótinu en þeirra leiðtogar geta úthlutað þeim verkefnum innan hópsins.

Gisting

Gist verður í grunnskólanum. Þátttakendur og leiðtogar þurfa að hafa með sér dýnur. Athugið að tvíbreiðar vindsængur eru ekki leyfilegar nema að tveir sofi á vindsænginni. Vegna fjölda skráninga er nauðsynlegt að nýta plássið vel. Raðað er í stofur eftir hópum og munu æskulýðsfélögin gista saman í stofum.

Matur

Fyrsta máltíðin á mótinu er á föstudagskvöld og því þurfa þátttakendur að kaupa sér mat eða taka með nesti ef langt er að keyra. Matmálstímar verða í matsal skólans.

Mikilvægt er að upplýsa landsmótsnefnd um fæðuofnæmi við skráningu þar sem slíkar upplýsingar þurfa að liggja fyrir tímanlega fyrir kokkana.

Ofnæmi

Vinsamlegast auglýsið það vel fyrir þátttakendum. (Athugið að margar tegundir af súkkulaði, próteinstykkjum og bakkelsi innihalda hnetur).

Mótsstaður

Dagskrá mótsins fer fram í grunnskólanum, sundlauginni og kirkjunni sem og víðsvegar um bæinn.

Skráning

Vefslóð: skraning.aeskth.is

Skráning á mótið fer fram í gegnum rafrænt skráningarkerfi ÆSKÞ.

Skráningu lýkur 22. september 2023.

Allar spurningar er snerta skráningu á Landsmót ÆSKÞ skal senda á netfangið skraning@aeskth.is.

Reglur um fjölda og aldur leiðtoga

Gerð er sú krafa að 1 leiðtogi fylgi hverjum 7 þátttakendum og með hverjum hóp skulu fylgja að lágmarki 2 leiðtogar. Biðjum við leiðtoga að virða þessa reglu. Hægt er að hafa samband við landsmótsstjóra ef æskulýðsfélag er í vandræðum með að manna leiðtogastöður. Leiðtogar verða að vera orðnir 18 ára þannn 13 október 2023 (fæddir 15. október 2005 eða fyrr).

Sjálfboðaliðar

Þeir ungleiðtogar sem eru 17 ára (f. 2006) og því ekki með aldur til að starfa sem leiðtogar á mótinu geta sótt um að vera í sjálfboðaliðahóp landsmóts. Einnig geta leiðtogar sem eru eldri en 17 ára sótt um að vera í þessum hópi ef þeir eru ekki að fara með hóp á landsmót.

Sótt er um þetta rafrænt hér á vefnum og opna umsóknir í byrjun september. Við hvetjum ungleiðtoga af höfuðborgarsvæðinu jafnt sem utan af landi til að sækja um.

Það er mikil vinna sem felst í því að vera sjálfboðaliði á landsmóti. Viðkomandi þarf að búa sig undir mikla vinnu, hjálpa til við uppsetningu á staðnum, þrif og fleira. Ekki komast allir að því einungis er hægt að taka inn 10-15 sjálfboðaliða fyrir hvert mót. Umsóknarfrestur um sjálfboðaliða er til 15. september 2023.

  • Leiðbeiningar vegna skráningar í sjálfboðaliðastarf:
  1. Á heimasíðunni er smellt á hnappinn „Landsmót 2023“.
  2. Þar á síðunni neðst til hægri er smellt á hnappinn „Sjálfboðaliðar“.
  3. Þá birtist skráningarform til þess að fylla út.
  4. Það er sent inn m.þ.a. smella á „Sækja um“ neðst í hægra horni.

Kröfur um skimun leiðtoga og sjálfboðaliða

ÆSKÞ gerir þá kröfu að allir leiðtogar og sjálfboðaliðar sem koma á landsmót hafi farið í gegnum skimun, þ.e.a.s að búið sé að kanna ákveðin atriði varðandi sakavottorð í samræmi við siðareglur vígðra þjóna og annars starfsfólks þjóðkirkjunnar. Það er á ábyrgð kirkju viðkomandi hóps að slík skimun hafi farið fram.

Samþykki um öflun gagna úr sakaskrá.