Landsmót í ár verður Fjarmót!

Enn og aftur þurfum við að takast á áskoranir vegna COVID-19. Landsmót getur því miður ekki farið fram með hefðbundnu sniði og munum við því aftur nýta okkur tæknina og bjóða upp á rafrænt Landsmót.  Dagskráin er spennandi og gerum við ráð fyrir því að hvert æskulýðsfélag hittist í sinni heimakirkju og taki þátt þaðan.

Dagskráin hefst með mótsetningu kl 16 laugardaginn 16. okt og dagskrá lýkur kl 22:00 Hægt er að nálagst dagskránna og frekari upplýsingar um hvern dagskrár lið hér: Dagskrá Fjarmóts – vinsamlegast kynnið ykkur dagskránna vel, það einfaldar framkvæmd mótsins til muna.

Við hvetjum æskulýðsleiðtoga til að bjóða til heilsdagsamveru eða gistinætur og nýta Fjarmótið sem hluta af dagskránni. Það eina sem þarf til að geta tekið þátt er nettengd tölva með vefmyndavél.

Mótið er æskulýðsfélögunum að kostnaðarlausu, en við óskum engu að síður eftir skráningum. Hinsvegar ef félögin ætla sér að hittast og eiga samveru saman má reikna með að viðburðurinn kosti. Endilega kynnið ykkur mögulega fjárhagsáætlun vegna Fjarmóts og styrkinn sem ÆSKÞ býður aðildarfélögunum uppá.  Ef æskulýðsfélögin gætu tilkynnt þátttöku sína og hugsanlegan fjöld þann 11. okt þá væri það frábært.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á skraning@aeskth.is

Ef þið hafið einhverjar spurningar endilega sendið línu á aeskth@aeskth.is