15618117536_eac492f518_k

Hæfileikakeppnin er af mörgum talin einn af hápunktum landsmóts enda hefur keppnin vaxið mikið síðastliðin ár. Í ár líkt og síðustu ár verður forkeppni. Því þurfa öll atriðin sem keppa eiga í hæfileikakeppninni að skila sér til dómnefndar eigi síðar en 8. október. 

Aðeins er leyfilegt að senda eitt atriði frá hverju æskulýðsfélagi í keppnina. Hámarkslengd á atriði sem tekur þátt í keppninni er 3 mínútur. Það má vera styttra en ekki er leyfilegt að fara yfir þennan tíma. Fari atriði yfir leyfilegan hámarkstíma verða stig dregin af atriðinu.

Síðastliðin ár höfum við óskað eftir því að æskulýðsfélögin sendi vídeó af atriðinu sínu um leið og það er skráð á mótið. Við nýtum okkur þessar upptökur fyrir dómnefndina til að kjósa fimm atriði sem komast áfram í lokakeppnina á landsmóti.

Úrslit hæfileikakeppinnar fara fram á laugardeginum

Stigagjöf

Í forkeppninni verður stiga gjöf með því móti að dómnefnd mun gefa hverju atriði stig og þau stiga hæstu keppa til úrslita. Í lokakeppninni verður sama fyrir komulag og hefur verið þar sem öll æskulýðsfélögin fá í hendur einkunnablað og gefa atriðunum atkvæði sem gilda 50% á móti atkvæðum dómnefndar (ekki ósvipað og í Eurovision). Atkvæðin eru talin saman í stigum líkt og í Eurovision. Ekki má gefa sjálfum sér stig. Þegar stig hafa verið gefin er atkvæðablaðið sett í umslag og skilað inn. Dómnefndin mun sömuleiðis gefa atriðunum 2, 4, 6, 8, 10 og 12 stig og gilda stig dómnefndar 50% á móti stigum æskulýðsfélaganna.

Eitt atriði frá hverju félagi

Aðeins er leyfilegt að senda eitt atriði frá hverju æskulýðsfélagi til keppni. Engar undantekningar verða gerðar á þessari reglu og því er mikilvægt að leiðtogar upplýsi sín æskulýðsfélög um þetta.

Tímatakmörk

Hámarkslengd á atriði sem tekur þátt í keppninni er 3 mínútur. Það má vera styttra en ekki er leyfilegt að fara yfir þennan tíma. Fari atriði yfir leyfilegan hámarkstíma verða stig dregin af atriðinu.

Æfingar

Vegna breytingar á fyrirkomulagi keppninnar getum við nú boðið æskulýðsfélögunum sem komast í lokakeppnina að æfa atriðið á sviðinu áður en lokakeppnin fer fram.

Skráning – síðasti skráningardagur er 8. október 2023

Smelltu hér til þess að skrá í hæfileikakeppnina. 

Upptaka af atriðum

Gerð er krafa um að þau æskulýðsfélög sem taka þátt í hæfileikakeppninni sendi okkur upptöku af atriðinu um leið og atriðið er skráð til keppni. Upptakan verður notuð til að velja þau 3-5 atriði sem komast áfram. Þó er ekki gerð krafa um að upptakan sé loka útgáfa af atriðinu – heldur einungis að hún gefi góða og rétta mynd af því hvernig atriðið mun líta út.

Engar kröfur eru gerðar um vinnslu, mynd eða hljóðgæði, einungis einfalda upptöku af atriðinu. Upptakan má vera á síma, myndavél, upptökuvél, iPod eða hverju því formi sem tekur upp myndskeið. Myndbandið er síðan sett inn á YouTube (mikilvægt að skrá það sem UNLISTED* svo að einungis landsmótsnefnd sjái). Sá sem skráir atriðið til keppni setur með slóðina á myndbandið svo að landsmótsnefnd geti nálgast það.

*Þegar myndband er skráð sem UNLISTED inni á YouTube þá getur einungis sá séð það sem hefur beina slóð á myndbandið.

Síðasti skráningardagur í hæfileikakeppnina er sunnudagurinn 8. október 2023.