Landsmót ÆSKÞ á Selfossi 20. – 22. október 2017
>> Smelltu hér til að sjá helstu dagsetningar og leiðbeiningar
Skráning
Skráning á Landsmót fer fram á vefnum á skraning.aeskth.is. Skráningu lýkur 29. september 2017.
Mótsgjald
Mótsgjald er 21.900 kr á mann fyrir aðildarfélög ÆSKÞ en 24.900 kr fyrir aðra. Við skráningu þarf að greiða 9.000 kr óafturkræft staðfestingargjald og svo afganginn af mótsgjaldinu fyrir mótið.
Nýjustu fréttir
Mótsnefndin komin á Egilsstaði
Nú fer að styttast í að Landsmót ÆSKÞ á Egilsstöðum bresti á. Stór hluti mótsnefndar er kominn til Egilsstaða og er undirbúningurinn í fullu fjöri. Við erum mjög spennt fyrir helginni og hlökkum til.
Landsmót 2023 á Egilsstöðum
FÖGNUM FJÖLBREYTILEIKANUM er yfirskrift landsmóts ÆSKÞ sem verður haldið á Egilsstöðum í ár, helgina 13. - 15. október. Skráning fer fram hjá leiðtogunum í kirkjunum og er skráningarfrestur til 22. september. Við munum æfa okkur [...]
Lifandi leikir / djögl og flæði
Haustnámskeiðið fyrir leiðtoga í barna- og unglingastarfi verður að þessu sinni haldið í Vindáshlíð 8. - 10. september 2023 og er aldurstakmark 18 ára á árinu. Námskeiðið ber heitið: "Lifandi leikir / djögl og flæði" [...]
Landsmótsstjóri
Ása Laufey Sæmundsdóttir
Netfang: landsmot@aeskth.is
Sími: 869 9659
Framkvæmdastjóri ÆSKÞ
Jónína Sif Eyþórsdóttir
Netfang: joninasif@aeskth.is
Sími: 661-8485
Hæfileikakeppni
Eins og áður verður hæfileikakeppnin á sínum stað á mótinu. Við erum þó alltaf að leita leiða til þess að gera gott betra og ætlum því að prófa nýja nálgun í ár. Æskulýðsfélög sem ætla að taka þátt í keppninni þurfa að senda inn myndband fyrir 2. október. Sérstök dómnefnd mun svo fara yfir öll innsend myndbönd og velja fimm bestu atriðin sem munu svo keppa á mótinu sjálfu. Þar verður stigagjöfin eins og áður, þ.e. dómnefnd sem hefur 50% vægi og atkvæði allra æskulýðsfélaganna með 50% vægi.
Eins og áður gildir að hvert atriði má vera í mesta lagi 3 mínútur að lengd.
Mótsgjöld
Það er dýrt að halda eitt stykki Landsmót og að mörgu að hyggja. Markmið ÆSKÞ hefur verið að reyna að halda mótsgjöldum eins lágum og mögulega er hægt til þess að sem flestir hafi möguleika á að koma. Fram á síðasta dag vinna framkvæmdastjóri og landsmótsstjóri að því að afla styrkja svo mótið geti gengið upp.
Mótsgjald er 21.900 kr/mann fyrir félög innan ÆSKÞ en 24.900 kr/mann fyrir félög utan ÆSKÞ. Greitt er mótsgjald fyrir bæði þátttakendur og leiðtoga. Af mótsgjaldinu er staðfestingargjald 9.000 kr/mann og er það óafturkræft. Það þýðir að jafnvel þó viðkomandi mæti ekki á mótið fær hann staðfestingargjaldið ekki endurgreitt.
Þátttakendur greiða venjulega sínum leiðtoga staðfestingargjaldið við skráningu á mótið. ÆSKÞ sendir svo kirkjunni reikning fyrir mótsgjaldinu. Rétt fyrir mótið greiða þátttakendur svo leiðtoganum sínum afganginn af mótsgjaldinu. Strax að móti loknu sendir ÆSKÞ svo kirkjunni reikning fyrir mótsgjöldum þeirra sem mættu auk mótsgjalda leiðtoga. Mikilvægt er að greiða reikningna strax því ÆSKÞ þarf að standa straum af reikningum við mótið s.s. rútum, gistingu, mat, tæknimálum o.fl.