22503756297_882ed995e1_oEinn af hápunktum Landsmóts á hverju ári er hæfileikakeppnin. Þar koma æskulýðsfélög saman og hæfileikaríkir einstaklingar fá að njóta sín á sviðinu. Landsmótsnefndin er alltaf að leita leiða til þess að bæta Landsmót og nú langar okkur að reyna nýtt fyrirkomulag við hæfileikakeppnina.

1. Senda inn myndband: 1. október 2016

Þau æskulýðsfélög sem ætla að taka þátt í hæfileikakeppninni senda inn myndband í síðasta lagi 1. október 2016. Atriðið má vera í mesta lagi 3 mínútur að lengd. Skráning fer fram á aeskth.is. Eitt atriði má koma frá hverju félagi.

2. Dómnefnd tekur til starfa

Dómnefnd mun fara yfir öll innsend atriði.

3. Fimm atriði valin áfram

Dómnefnd velur fimm bestu atriðin sem munu svo keppa til úrslita á mótinu. Þau atriði fá a.m.k. viku fyrirvara og geta þannig undirbúið sig.

4. Úrslitakeppni á Landsmóti

Á laugardeginum verður haldin úrslitakeppni á mótinu sjálfu. Þar verða fimm bestu atriðin sýnd á sviði. Atriði má vera í mesta lagi 3 mínútur og Samfés reglur gilda um klæðaburð eins og áður.

5. Dómnefnd og æskulýðsfélög velja sigurvegara

Líkt og síðustu ár mun dómnefnd kveða upp sinn dóm og gildir hann 50%. Öll æskulýðsfélög á mótinu greiða svo atkvæði og gilda þau 50% á móti dómnefnd.