Aðalfundur ÆSKÞ mun fara fram miðvikudaginn 8. maí 2024 kl. 17.30 í Neskirkju í Reykjavík og á Zoom. Húsið opnar kl. 17.00.

Við hvetjum ykkur til að huga að framboði til stjórnar. Að þessu sinni verður kosið um gjaldkera til eins árs (þar sem núverandi gjaldkeri lætur af störfum eftir eitt starfsár í stað tveggja), ritara og tvo meðstjórnendur til tveggja ára auk fimm varamanna til eins árs.

Að starfa í stjórn félagasamtaka á borð við ÆSKÞ er gefandi og lærdómsríkt. Í stjórn situr að jafnaði fjölbreyttur hópur fólks með mismunandi bakgrunn í æskulýðsmálum og á breiðu aldurbili. Við hvetjum presta, djákna, æskulýðsfulltrúa, æskulýðsleiðtoga og þátttakendur í æskulýðsstarfi til að gefa kost á sér í stjórn.

Þeir sem vilja fá frekari upplýsingar um hvernig það er að starfa í stjórn ÆSKÞ geta sent tölvupóst á solveig@aeskth.is

Á dagskránni eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Öll gögn aðalfundar verða aðgengileg á heimasíðu ÆSKÞ. Við minnum á að „önnur mál og tillögur“, sem aðildarfélög óska að tekin verði fyrir á aðalfundi skulu berast stjórn eigi síðar en viku fyrir aðalfund.