Núna er landsmót á næsta leiti og leitar stjórn ÆSKÞ þess vegna eftir duglegu fólki til þess að starfa í landsmótsnefnd.
Landsmótsnefnd sér til þess að mótið gangi upp og ber ábyrgð á dagskrá þess.
Þetta er skemmtileg vinna í góðum hópi og nánum samskiptum við stjórn ÆSKÞ.

Mótið fer fram helgina 14.-16. október og vinnur stjórn hörðum höndum að koma upplýsingum út til félagana okkar sem fyrst.

Hlutverkin sem eru innan nefndarinnar eru eftirfarandi: 

1) Framkvædmastjóri ÆSKÞ – Sigurður Óskar

2) Landsmótsstjóri Sér um tengslanetið Þarf að geta verið virkur á sviðinu Vera sérstaklega vel inn í dagskrá og allri framkvæmd Boðar landsmótsnefndar fundi Stýrir vinnu landsmótsnefndar Er í tengslum við fulltrúa heimabyggðar Þarf að kynna sér staðhætti vel Þarf að kynna sér verkefni annara og geta með litlum fyrirvara sett nýtt fólk inn í verkefnin ef upp koma forföll eða veikindi

3) Vaktstjóri Setur saman vaktir Fylgir því eftir að allir séu með sínar vaktir á hreinu Vinnur náið með L0 og landsmótsstjóra Þarf að kynna sér staðhætti vel

4) Fulltrúi heimabyggðar Býr á svæðinu eða með mjög góð tengsl við svæðið Hjálpar landsmótsnefnd að skipuleggja viðburði, finna styrktaraðila og kynnast svæðinu.

5) Fjölmiðlafulltrúi Sér um að taka myndir Setur saman efni fyrir vefmiðla og fjölmiðla ef eftir því er óskað Þarf að vera á ferðinni og fylgja mótinu eftir í myndum og spjalli.

6) Sviðsstjóri Er upp á sviði og stýrir mótinu þaðan Er með tæknimálin nokkuð á hreinu Er með dagskránna alveg á hreinu og alla skipulagningu Er í samskiptum við tækniborðið – glærur. Þarf að geta tekið ákvarðanir.

7) Veitingastjóri Sér um kaffihornleiðtoga Sér um sjoppu Kaupir inn og gerir samning við byrgja Fylgir eftir að sérþörfum vegna matarræðis sé fylgt eftir

8) Viðburðarstjóri Sér um skipulagningu á leikjum/verkefnum á mótinu Sér um skipulagningu á hæfileikakeppni Þarf að geta unnið sjálfstætt Þarf að geta fengið leiðtoga með sér í viðeigandi verkefni.

9) Tæknistjóri Sér um netmál Tölvur/prentara oþh Ber ábyrgð á mótsherbergi Talstöðvar Sér um glærushowið Vinnur náið með viðburðarstjóra

10) L0 – sjálfboðaliðar Sér um að velja í og starfa með sjálfboðaliðahópnum Framúrskarandi leiðtogahæfileikar Þarf að geta verið á fullu með sjálfboðaliðunum og sýnt þeim gott fordæmi Þarf að þekkja vel inn á landsmót og vita hvar álags punktar myndast Þarf að geta virkjað sjálfboðaliðana

 

Við hvetjum öll til þess að sækja um með því að senda póst á siggi@aeskth.is og taka fram hvaða hlutverk þið hafið áhuga á að sinna.