Æskulýðsfélag mánaðarins

Á nýju ári hefjum við nýjan dagskrárlið á heimasíðu ÆSKÞ til að auka sýnileika æskulýðsstarfsins. Framundan munu því birtast kynningar á starfinu með efni frá æskulýðsfélögum af höfuðborgarsvæðinu sem og landsbyggðinni.

Það er æskulýðsfélag Landakirkju – ÆSland sem hefur leika. Hvert félag hefur listrænt frelsi til kynningar. Það er ánægjulegt hversu æskulýðsfulltrúar hafa tekið vel í þetta verkefni. Vonast er til að þetta efli okkur öll enn frekar í æskulýðsstarfinu enda skapast hér tækifæri til að viða að sér hugmyndum. Gildi æskulýsstarfs er margsannað og gott að fá tækifæri til að gefa nánari innsýn í hið daglega starf.

ÆsLand

Félagið heitir ÆsLand, Æskulýðsfélag Landakirkju og KFUM og K í Vestmannaeyjum og var stofnað árið 1995. ÆsLand styttingin kemur frá frá leiðtogum sem voru í starfinu í kringum 2010-2012. Starfið er stutt af Landakirkju, KFUM og K í Vestmannaeyjum og KFUM og KFUK á Íslandi og er svo aðili að ÆSKÞ.

Hefðbundinn æskulýðsfundur

Við hefjum stundina inni í Landakirkju þar sem við kveikjum á kertum, förum með upphafsbæn, syngjum saman, hlustum á hugleiðingu og ljúkum svo á bæn og Faðir vor. Mikil áhersla er lögð á söng og þátttöku sem flestra en um leið að virða þá sem vilja aðeins taka þátt í anda og upplifa sem áhorfendur. Gísli æskulýðsfulltrúi leiðir þá stund.

Að því loknu tekur við auglýst dagskrá sem inniheldur leiki og skemmtanir. Ungleiðtogarnir leiða þá stund í flestum tilfellum.

Dagskrárliðir haust ´21

Mission Impossible

Stratego

Stríð

Boccia

Jól í skókassa

Nammileikir

Blöðrubolti

Skrímslaleikur á hrekkjavöku

Ógeðismatarkeppni

Land og borg

Stinger

Kökuskreytingarkeppni

Minute to Win it

Jólabíó

 

Leikur

Eggjarúlletta

Íhlutir:

–       Egg, a.m.k 1-2 á þátttakanda.

–       Stórir ruslapokar til að verja stóla, gólf og þátttakendur

–       Stór ruslafata

 

Undirbúningur

Ca 80% eggjanna eru harðsoðin og blandað saman í bakka með ósoðnum. Eggin eru svo geymd í kæli þar til þau hafa öll náð sama hitastigi. Stól er stillt upp og ruslafötu fyrir aftan hann. Gott er að klæða stólinn í stóran ruslapoka og jafnvel taka einn í sundur og breiða hann út yfir gólfið undir stólnum til að verja það fyrir eggjunum.

 

Framkvæmd

Krakkarnir raða sér í hæfilegri fjarlægð í kringum staðinn þar sem leikurinn fer fram og eiga að peppa þá áfram sem vilja taka þátt. Þátttakendur koma upp hver á eftir öðrum og velja sér egg, fara í hlíðarpoka og setjast á stólinn með hausinn reigðan aftur yfir ruslafötuna. Mikilvægt er að leyfa krökkunum ekki að snerta eða skoða eggin mjög nærri. Best að halda hæfilegri fjarlægð því glöggir sjá örlítinn mun á soðnum og ósoðnum eggjum.

Leiðtogi tekur svo eggið sem þátttakandinn valdi og smellir því létt í hausinn á þátttakandanum. Ef hann fékk harðsoðið slapp hann við að fá drulluna í hausinn. Sá sem fær ósoðið egg í hausinn fær svo verðlaun sem geta t.a.m. verið að velja annað egg sem fer í hausinn á einn af leiðtogunum. Það er mest fjör fyrir krakkana að öll eggin sem leiðtogar fá í hausinn séu ósoðin.

Viðtöl ofl. frá Vestmannaeyjum:

https://www.youtube.com/watch?v=D_wk8JHULqQ