Pressuhópurinn tekur viðtal við Júlí Heiðar

Pressuhópurinn tekur viðtal við Júlí Heiðar. Mynd: Bogi Benediktsson

Pressuhópurinn á landsmótinu hitti Júlí Heiðar og spurði hann nokkurra spurninga.

Pressuhópur: Hvert er hlutverk þitt á landsmóti ÆSKÞ?

Júlí Heiðar: „Ég er að kenna hiphop og sýna þeim hvernigá að dansa almennilega.“

P: Er þetta skemmtilegur hópur?

JH: „Þau eru snillingar. Frábær hópur. Standa sig líka vel og eru að ná öllu.“

P: Hvað ertu að kenna þeim í stuttu máli?

JH: „Ég er í raun og veru að kenna þeim svona grunnsporin. Svo kenni ég þeim svona stuttan dans sem er ekkert voðalega efiður.“

P: Gengur vel?

JH: „Já, svakalega vel.

P: Í hverju ertu að vinna núna?

JH: „Ég er að kenna niðri í bæ.“