Hefur þú gaman af því að syngja, leika eða dansa?  Ef svarið er JÁ þá er LÆK eitthvað fyrir þig.  LÆK, leiklistarstarf æskulýðsfélaga kirkjunnar er glænýtt starf sem hefst núna í vikunni og verður starfrækt út sumarið.
Annað kvöld, mánudaginn 4.apríl verður sérstakur kynningarfundur LÆK í Neskirkju.  Fundurinn hefst kl.19:30 og hvetjum við alla ungleiðtoga og aðra sem eru á aldrinum 16-22 ára og hafa áhuga á að kynna sér þetta að líta við.  Ef þið komist ekki á morgun þá bara mætið þið næst, sendur verður póstur á listann með föstum æfingatímum 🙂

EN HVAÐ ER LÆK?

Stefnt er að því að leikfélagið hittist vikulega á miðvikudagskvöldum og mun félagið nota safnaðarheimili kirkna á höfuðborgarsvæðinu undir æfingar. Á kvöldæfingunum verða kennd undirstöðuatriði leiklistar og framkomu og starfræktir hópar sem að sinna margvíslegum verkefnum á borð við leikmuna- og búningahönnun, tónlist, tæknimál ofl. Mánaðarlega er síðan stefnt á að koma á fót viðburði í anda þess sem á ensku nefnist Flash mob en þá er sett á svið gjörningur á almannafæri sem innifelur tónlist, dans og leik og er markmið þeirra hverju sinni að vekja athygli á einhverju málefni. Aðsetur og heimilisfang LÆK verður í Neskirkju við Hagatorg.

Hlökkum til að sjá ykkur
Kv.Rakel Brynjólfsdóttir
Umsjónarmanneskja LÆK