Hið árlega TTT-mót ÆSKÞ verður haldið í Vindáshlið helgina 8. – 9. apríl næstkomandi. Lagt verður af stað frá Árbæjarkirkju á föstudeginum kl. 17 og komið verður til baka á laugardeginum um kl. 16.

Þema mótsins er „Ég er hermaður Krists“. Allir eru mjög mikilvægir sem lærisveinar Jesú og allir geta gert mikið gagn.

Dagskráin er góð og skemmtileg enda Vindáshlíð einstaklega skemmtilegur staður fyrir svona verkefni.

Verð fyrir hvert barn í ferðina er 3500 kr. og er innifalið í því GISTING OG MATUR ALLAN TÍMANN.

ATH. Rútukostnaður er ekki innifalinn í verðinu.  Bæklingur og frekari upplýsingar í tengli hér fyrir neðan.

Nánari upplýsingar um mótið ásamt leyfisbréfi