Nú stendur yfir Evrópuvika gegn misrétti og dag voru haldnir viðburðir á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi og Akureyri.

Evrópuvika gegn kynþáttafordómum er árlegt samstarfsverkefni sem Mannréttindaskrifstofa Íslands heldur utan um, og samstarfsaðilar í ár eru Þjóðkirkjan og ÆSKÞ, Rauði kross Íslands, ÍTR og Alþjóðatorg ungmenna.

Fjöldi unglinga tóku þátt í viðburðunum, sýndu skemmtiatriði og sóttu smiðjur. Þau klæddust bolum með merki viðburðarins, dreifðu bæklingum um málefnið, barmmerkjum og sælgæti á meðan þau ræddu við gesti og gangandi um fordóma og misrétti.

Meðfylgjandi mynd er af unglingum sem tóku þátt í viðburðinum á Glerártorgi á Akureyri.