LÆK

Hefur þú gaman af því að syngja, leika eða dansa?  Ef svarið er JÁ þá er LÆK eitthvað fyrir þig.  LÆK, leiklistarstarf æskulýðsfélaga kirkjunnar er glænýtt starf.

EN HVAÐ ER LÆK?

Leikfélagið hittist vikulega á og mun félagið nota safnaðarheimili kirkna á höfuðborgarsvæðinu undir æfingar. Á kvöldæfingunum verða kennd undirstöðuatriði leiklistar og framkomu og starfræktir hópar sem að sinna margvíslegum verkefnum á borð við leikmuna- og búningahönnun, tónlist, tæknimál ofl. Mánaðarlega er síðan stefnt á að koma á fót viðburði í anda þess sem á ensku nefnist Flash mob en þá er sett á svið gjörningur á almannafæri sem innifelur tónlist, dans og leik og er markmið þeirra hverju sinni að vekja athygli á einhverju málefni. Aðsetur og heimilisfang LÆK er í Neskirkju við Hagatorg.

 

Jóladagatal LÆK

Smelltu hér til þess að skoða 24 jólakveðjur LÆK á aðventunni 2011

Flöskukank laugardaginn 7. maí