Málþing um æskulýðsstarf 29. september, kl. 14:00-16:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur
Hvernig getum við skilað börnum betur út í lífið? Getum við gert það með þátttöku í æskulýðsstarfi? Hvert er gildi þátttöku í æskulýðsstarfi? Hvaða hlutverk hefur æskulýðsstarf? Er æskulýðsstarf mkilvægt? Eru þeir sem ekki taka þátt í æskulýðsstarfi í meiri hættu á að leiðast út í áhættuhegðun? Uppbyggilegt félagsstarf með börnum og unglingum á sér yfir 100 ára sögu hér á landi. Hver er staða æskulýðsstarfs í dag? Hvernig væri samfélagið án æskulýðsstarfs?
Næsta laugardag, 29. september klukkan 14:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur munu börn og unglingar reyna að svara einhverjum þessara spurninga, auk þess verða stutt innlegg frá sérfræðingum.
Á meðan á málþinginu stendur gefst börnum kostur á því að prófa klifurvegg, búa til barmmerki, taka þátt í kassaklifri og blöðrugerð fyrir utan Ráðhúsið og boðið verður upp á léttar veitingar.
Hefur þú tekið þátt í æskulýðsstarfi? Heldur þú að það breyti einhverju fyrir líf fólks að taka þátt í þannig starfi og jafnvel að það geri menn að betra fólki? Komdu í Ráðhúsið á laugardaginn og vertu vitni að viðburði sem er skipulagður að öllu leyti af ungu fólki og snýst um að sýna ennþá betur hvað unga fólkið er fært um að gera.
Meðal þeirra sem koma fram eru Torfi Tómasson barnastjarna í söng, Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur, Ice Step danshópurinn, ungt fólk sem tekur þátt í æskulýðsstarfi segir frá reynslu sinni, Stefán Eiríksson lögreglustjóri, Dróttskátasveitin Dímon, Bjarni töframaður, Kristín Rós Hákonardóttir sundkona og margt fleira.
Verkefnið er samstarfsverkefni Bandalags íslenskra skáta, KFUM & KFUK, UMFÍ og Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar og skipulagt af fólki á aldrinum 17-21 árs úr þeim hreyfingum. Verkefnið er styrkt af Æskulýðssjóði Menntamálaráðuneytisins og Pokasjóð.
Leiktæki verða opin milli 13 og 17 en málþingið sjálft hefst klukkan 14 og stendur í um 2 klukkutíma.







