Fyrir leiðtoga
Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar
Selfossi, 28.-30.október 2011
“Hjörtu úr gulli”
“Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þið gert mér” Matt 25:40
Vertu með á frábærri helgi
Í ár er öllum æskulýðsfélögum á landinu stefnt til Selfoss. Þar ætlum við að mála bæinn rauðann með kærleika og gleði, en rauður er einmitt þemalitur mótsins í ár. Dagskráin verður fjölbreytt og skemmtileg og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Mótið í ár verður með góðgerðarþema líkt og í fyrra. Við beinum sjónum okkar til Japan og munum við vinna með góðgerðarsamtökum og Hjálparstarfi Kirkjunnar. Samtökin styðja við börn sem misstu báða foreldra sína í náttúruhamförunum í Japan í vor. Samtökin styðja þessi börn og hjálpa þeim að vinna úr þessu áfalli, einnig er börnunum gert kleift að sækja sumarbúðir.
Eins og vanalega munum við fá til okkar góða gesti sjá um fræðslu og fleira á mótinu. Frábær tónlist verður á mótinu og hefur hljómsveitin Tilviljun? staðfest komu sína, þau munu sjá um alla tónlist á morgunstundum, kvöldvökum og helgistundum. Á búningaballinu á laugardagskvöldinu verður RAUTT þema. Á ballinu mun svo landsfrægur tónlistarmaður stíga á stokk ásamt stuðhljómsveit og Dj
Eins og vanalega verðum við með skemmtilegt og fjölbreytt hópastarf þar sem allir eiga að geta fundið e-ð við sitt hæfi. Undirbúningur hópastarfsins er nú þegar kominn í gang og erum við í nefndinni mjög spennt fyrir mótinu og því sem boðið verður upp á.
Verð: 15.900 kr á mann (þar af 5.000 kr staðfestingargjald sem þarf að greiða í síðasta lagi 7. október)
Skráning: Fer fram á vefnum. Skráningarfrestur er til 7. október.
Allar fréttir af gangi mála í tengslum við landsmótið koma hér inn jafn óðum…endilega fylgist með
Sjáumst hress á Selfossi í október.
Hér er hægt að sjá smá upphitun fyrir landsmótið :
