Hagnýtar upplýsingar

Dagsetning

28 – 30. október 2011

Staður

Selfoss

Brottför

Á höfuðborgarsvæðinu verður brottför föstudaginn 28. október frá Digraneskirkju í Kópavogi kl. 16:30. Upplýsingar um brottför af landsbyggðinni fást hjá viðkomandi leiðtoga.

Heimkoma

Lagt verður af stað frá Selfossi sunnudaginn 30. október kl. 12:30

Gisting

Gist verður í Vallaskóla og Sandvíkurskóla. Þátttakendur þurfa að hafa með sér dýnu, svefnpoka, kodda og lak.

Matur

Borðað verður í íþróttahúsi FSU, Iðu, en þar fer öll dagskrá mótsins að mestu fram. Ekki er þörf að því að koma með nesti. Upplýsingum um fæðuofnæmi skal koma til leiðtoga viðkomandi þátttakenda sem skráir þær inn í skráningarkerfið.

Hæfileikakeppni

Hæfileikakeppnin í ár verður á laugardagskvöldinu, líkt og verið hefur. Landsmótsnefnd hefur ákveðið að hvert atriði megi ekki vera lengra en 2.00 – 2.30 mínútur og einungis er heimilt að vera með 1 atriði frá hverju æskulýðsfélagi. Þetta er vegna þess að við erum bundin af tíma

Eins og venjulega eru veglegir vinningar í boði svo það er til mikils að vinna. Við hlökkum mikið til að sjá þá miklu hæfileika sem búa í félögunum.

Búningaball

Á laugardagskvöldi verður haldið mikið búningaball í Iðu þar sem Stuðlabandið og DJ Búni halda uppi fjörinu. Vegleg verðlaun verða veitt því æskulýðsfélagi sem mætir í flottustu búningunum.