Aðalfundur 2011

Aðalfundur ÆSKÞ
24. febrúar 2011

1. Fundarsetning.

Fundur settur. Margrét Ólöf Magnúsdóttir setti fundinn.

2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

Fundarstjóri Guðmundur Karl Einarsson og fundarritari Tinna Sigurðardóttir.

3. Farið yfir starfsskýrslu ÆSKÞ-stjórnar fyrir árið 2010.

Allir viðburðir ÆSKÞ virðast ganga vel og fara vaxandi.

4. Ársreikningar.

Heildarkostnaður á milli ára hefur verið svipaður og því sparnaður verið gríðarlegur.
Landsmótsgjöld máttu ekki vera hækkuð þetta ár en halli á landsmóti hefur lækkað sem er stórt afrek.
Góðverkið að safna peningum til að frelsa börn á Indlandi gekk vel og voru 72 börn frelsuð með rétt rúmlega 364 þúsund krónum.                                                            Ársreikningurinn samþykktur.

5. Rekstraráætlun og ákvörðun félagsgjalda.

Mótsgjöldin munu líklega hækka. Laun og launatengd gjöld áætluð þau sömu.  Kostnaður landsmóts, búist við að hann verði lægri. Húsnæði á Selfossi verður ÆSKÞ að kostnaðarlausu (hefur verið um 620 þúsund). Rekstraráætlun samþykkt. Tillaga um að félagsgjöldin hækkuð um 5.000 kr og verður því 25.000 kr á hvert félag. Tillaga um félagsgjöld samþykkt.

6. Skýrsla framkvæmdastjóra.

Skýrsla framkvæmdastjóra kynnt.
Efla æskulýðsstarfið á landinu og skera það niður sem minnst. Markmið er að hvetja krakka og unglinga til að taka þátt í kristilegu æskulýðsstarfi og opna tækifæri fyrir erlenda fræðslu. Stjórnin hefur staðið sig gífurlega vel. Enginn á biskupsstofu sem vinnur að barnavernd, starfið lagt niður. Innskot frá Erlendi – Þar sem mikið er starf, þar er mikið sótt um. Ekki hætta að sækja um styrki. Verður mikið hert á reglunum hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti.

7. Starfsáætlun.

Starfsáætlun kynnt.

8. Lagabreytingartillögur.

4. gr. Aðalfundur ÆSKÞ skal haldinn fyrir 1. júní ár hvert. Til aðalfundar skal boða með þriggja vikna fyrirvara og skal hann auglýstur í fjölmiðlum, á vef ÆSKÞ og með boðsbréfi. Sé aðalfundur ólöglegur skal boða til framhaldsaðalfundar eins fljótt og auðið er.

Breyting á 4. gr. samþykkt.

7. gr. Kjörtímabilið er tvö ár (kosið annað hvert ár). Annað árið er ritari og meðstjórnendur kosnir. Hitt árið eru formaður og gjaldkeri kosnir. Varastjórn fær sameiginlega kosningu til eins árs. Þess skal gætt að aldurs-, kynja- og búsetuhlutfall sé sem sanngjarnast. Enginn má sitja meira en þrjú kjörtímabil í röð í framkvæmdastjórn.

Breyting á 7. gr. samþykkt.

7. gr. a) Ákvæði til bráðabyrgða: Á aðalfundi 2011 skulu formaður og gjaldkeri kosnir til tveggja ára en ritari og meðstjórnendur til 1 árs.

7. gr a) samþykkt.

8. gr.
Verkefni aðalfundar eru m.a.:
1. Fundarsetning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla framkvæmdarstjórnar kynnt og rædd.
4. Ársreikningar. Umræða og afgreiðsla.
5. Rekstraráætlun og ákvörðun félagsgjalda. Umræða og afgreiðsla.
6. Skýrsla framkvæmdarstjóra.
7. Starfsáætlun. Umræða og afgreiðsla.
8. Lagabreytingatillögur.
9. Kosning formanns, ritara, gjaldkera og tveggja meðstjórnenda í framkvæmdastjórn ÆSKÞ, sbr. 7. gr.
10. Kosning fimm manna varastjórnar.
11. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
12. Tillögur og ályktanir.
13. Önnur mál.
14. Fundarslit.

10. gr. Í framkvæmdastjórn sitja formaður, ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur. Nýskipuð stjórn skal taka við á aðalfundi. Ritari tekur við skyldum formanns í fjarveru formanns. Atkvæðafjöldi á bak við varamenn í stjórn ræður hver tekur fyrst sæti í framkvæmdastjórn ef stjórnarmeðlimur hættir eða forfallast.

8. og 10. gr. samþykkt.

9. Kosning formanns, ritara, gjaldkera og tveggja meðstjórnenda í framkvæmdastjórn ÆSKÞ, sbr. 7. gr.

Kosið var um ofannefnt.
Formaður: Margrét Ólöf Magnúsdóttir
Ritari: Matthildur Bjarnadóttir
Gjaldkeri: Sigurvin Jónsson
Meðstjórnendur: Sunna Dóra Möller og Þórunn Áslaug Harðardóttir

10. Kosning fimm manna varastjórnar.

Kosið var um ofannefnt.
Gunnar, Konný Björg, Bjarni Heiðar Jóhannsson, Anna Ólafsdóttir og Diljá kjörin í varastjórn

11. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.

Guðmundur Karl og Sigurvin.

12. Tillögur og ályktanir.

Tillaga til að hafa Landsmótið 11. – 13. nóvember árið 2011, þrátt fyrir áragamalli hefð að hafa það í október. Þægilegra fyrir hópinn, þeir eru nefnilega oft að byrja rétt áður og gefst því ekki tími til að safna peningum né tími til að kynnast börnum og leiðtogum.

13. Önnur mál.

5 milljónir frá finnsku þjóðkirkjunni verða gefnar til kærleiksverkfna og vill biskup eyrnamerkja þennan pening ungu fólki. Endilega sækja um styrk úr þessum sjóð en umsóknir skulu berast fyrir 1. mars. 2011. Umsókn fyrir leiklistarstarf þar sem ekki allir eru tilvaldir í leiðtogann, um að gera að virkja þá í einhverju öðru þá. Fyrra verkefnið yrði einu sinni í viku þar sem ungmennin fengju grunnþekkingu á leiklist og settu upp gjörning. Einu sinni í mánuði yfir sumarið yrði sýnt. Í lok sumars yrði vonandi kominn sterkur hópur sem tekur þátt í leiklistinni, búningagerð ofl. Vorið 2012 yrði þá sýnt stærra verk sem hópurinn tæki þátt. Uppbyggingarstarf með innfléttuðum kristilegum boðskap. Verkefnið gæti fallið undir Evrópu unga fólksins.

Margrét Ólöf sagði frá söfnuninni á Landsmótinu á Akureyri.

14. Fundarslit.

Fundargerð ritaði Tinna Sigurðardóttir