22299244334_27fafc4ac8_oHefur þú áhuga á að koma að framkvæmd landsmóts ÆSKÞ á Akureyri?

Til þess að mótið gangi upp þurfum við hressa og duglega sjálfboðaliða. Mikil vinna liggur að baki undirbúningi, framkvæmd og frágangs á jafnstórum og viðamiklum viðburði og landsmót ÆSKÞ er. Sjálfboðaliðar aðstoða við ýmis verkefni á Akureyri fyrir mót, á mótinu og eftir mót. Það er alveg sérstök reynsla að vera sjálfboðaliði á landsmóti, mikil vinna en mikil gleði.

Ef þú ert 17 ára eða eldir og ert tilbúin í skemmtilega vinnutörn 22.-25. október þá getur þú sótt um hér fyrir neðan. Umsóknarfrestur er til 30. septmeber 2016.