31. október 2011 08:00
Pressuhópurinn á landsmótinu hitti Júlí Heiðar og spurði hann nokkurra spurninga. Pressuhópur: Hvert er hlutverk þitt á landsmóti ÆSKÞ? Júlí Heiðar: „Ég er að kenna hiphop og sýna þeim hvernigá að dansa almennilega.“ P: Er þetta skemmtilegur hópur? JH: „Þau eru snillingar. Frábær hópur. Standa sig líka vel og eru að ná öllu.“ P: Hvað [...]
Höfundur: Árni Svanur Daníelsson
30. október 2011 14:02
Karl biskup nefndi landsmótið í útvarpsprédikun sinni í Hallgrímskirkju í dag: „Á föstudagskvöldið var naut ég þeirrar gleði að opna Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar sem haldið er á Selfossi. Það var uppörvandi vonartákn að hitta fyrir þessi fimm hundruð ungmenni af öllu landinu sem þar eru undir forystu dugmikilla presta, djákna og æskulýðsleiðtoga. Þau eru að [...]
Höfundur: Árni Svanur Daníelsson
29. október 2011 18:42
„Hér eru 500 krakkar og þau leggja öll sitt af mörkum og ef allir leggja sitt af mörkum þá getum við gert eitthvað stórkostlegt, segir Konný Björg úr Digraneskirkju. Hún er ein af 500 unglingum og leiðtogum sem sækja landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar á Selfossi um helgina og taka þátt í söfnun handa jafnöldrum sínum sem [...]
Höfundur: Árni Svanur Daníelsson
29. október 2011 12:29
Hljómsveitin Tilviljun? frumflutti lagið Hjörtu úr gulli sem er landsmótslagið 2011 við setningu Landsmóts æskulýðsfélaga í gærkvöldi. Lagið fjallar um neyð fólks sem býr langt í burtu og hvetur okkur til að leggja þeim lið og hjálpa þeim sem grætur. Í ár, eru þónokkur sár, og miklu fleiri tár, sem lækna þarf. Því að, langt [...]
Höfundur: Árni Svanur Daníelsson
29. október 2011 11:33
500 unglingar og leiðtogar eru samankomnir á landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar sem var sett á Selfossi fyrr í kvöld. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, setti landsmótið og þakkaði unglingunum fyrir gott starf og góðan hug: „Nú veit ég af góðverkahelgi landsmótsins. Þar munuð þið leggja mikið af mörkum til þeirra sem treysta á aðstoð. Ég veit að [...]
Höfundur: Guðmundur Karl Einarsson