7 dagar í að skráningarfrestur renni út ….

30. september 2011 11:05
Efnisflokkur:

Já, það styttist svo sannarlega í Landsmótið okkar og nú er svo komið að aðeins 7 dagar eru í það að skráningu ljúki. Við hvetjum alla leiðtoga til þess að kynna sér skráningarkerfið, hægt er að fara inn á kerfið undir liðnum landsmót hér fyrir ofan á síðunni. Ungleiðtogar sem eru 17 ára eða eldri [...]

Nedó Sport verður á Landsmóti OG OG OG … INGÓ verður í sundlaugarpartýinu!

27. september 2011 14:36
Efnisflokkur:

Í gær skellti landsmótsnefndin sér á Selfoss þar sem við hittum Örlyg, skólameistara FSU og einnig Svan, trésmíðakennarann í FSU sem ætlar að sjá um skemmtilegan trésmíðahóp á laugardeginum. Einnig hittum við Ninnu Sif, verðandi prest og meðlim nefndarinnar ásamt honum Einari Björnssyni sem er maðurinn sem mun eiga stóran þátt í að gera landsmótið [...]

Nýr “teaser” með Tilviljun? kominn…

25. september 2011 23:43
Efnisflokkur:

Plakatið er komið úr prentun, skemmtikraftar æfa á fullu, umsjónarmenn hópa undirbúa spennandi starf….já, það styttist í Landsmótið og nú eru bara 5 vikur þar til við hittumst á Selfossi! Nú er komið skemmtilegt “teaser”myndband með Tilviljun? sem við hvetjum ykkur til að kíkja á. Tilviljun? mun leiða alla tónlist á morgunstundum, kvöldvökum og helgistundum [...]

Ari Eldjárn kominn í flottasta hópinn…

23. september 2011 15:12
Efnisflokkur:

Ójá, hinn bráðfyndni uppistandari Ari Eldjárn mun kíkja á okkur á Landsmótinu og segja nokkra velvalda brandara Plakatið okkar er í prentun og verður tilbúið í dag. Annars er allt gott að frétta héðan úr hýbýlum landsmótsnefndarinnar og stefnum við á að skella okkur til Selfoss á mánudaginn að græja og gera. Þangað til næst

Júlí Heiðar bætist í flóru landsmóts…

21. september 2011 10:31
Efnisflokkur:

Já, þið lásuð rétt. Í gær bættist við mjög spennandi Hip Hop danshópur á vegum Júlí Heiðars. Júlí Heiðar þarf vart að kynna fyrir unglingunum okkar…en kannski þarf að kynna hann aðeins fyrir okkur…hinum eldri *hóst, hóst* Júlí hefur aðallega getið sér gott orð í tónlistinni og þá sérstaklega fyrir söng sinn með Kristmundi Axel [...]